Höttur leikur fyrsta heimaleik sinn í 1. deild körfuboltans nk. föstudag. Leikið verður við FSU og hefst leikurinn kl. 18:30, föstudaginn 18.10. Heimaleikir Hattar hafa nú verið færðir frá fimmtudegi á föstudag og vonumst við til að áhorfendur fylki liði í Íþróttamiðstöðina á Egilsstöðum.
Miðaverð á leiki verður 1.000 kr. fyrir fullorðna, 500 kr. fyrir ME nema og frítt fyrir börn (m.v. grunnskólaaldur). Ársmiðar á alla níu heimaleiki Hattar verða til sölu á 5.000 kr. Leikmenn meistaraflokks munu jafnframt ganga í hús og selja ársmiða og vonum við að þeim verði vel tekið.