Í gær varð ljóst að sameinað meistaraflokkslið Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis F (F/H/L) eru deildarmeistarar í 2. deild kvenna þó enn eigi eftir að spila eina umferð.
Sú glæsilega niðurstaða þýðir að liðið mun spila gegn því liði sem endar í 4. sæti deildarinnar um það að fara upp um deild en hvaða lið það verður er óráðið.
Í 11. leikjum hefur F/L/H einungis tapað einum leik og eru með markatöluna 70-12 sem er ótrúlega gott.
Þá hafa nokkrir leikmenn liðsins verið á skotskónum en þannig hafa þær Alexandra Taberner og Freyja Karín skorað 17 og 16 mörk fyrir liðið í sumar.
Síðasti leikur sumarsins er úti gegn Einherja áður en úrslitakeppnin byrjar og vonumst við til að sjá allt stuðningsfólk félagsins mæta þá og hvetja liðið upp um deild.