Skráningar í Allir með 1-2bekkur

ágú 16, 2023 | Allir með!

Opnað hefur verið fyrir skráningar í Allir með á haustönn 2023 fyrir 1-2 bekk.
Sama snið verður á þessu og var á síðasta ári. Skráningar fara fram í gegnum vefverslun Sportabler.

Sú leiðinlega staða kom upp að sundið dettur út og verður ekki núna í haust. Það er von okkar að við getum fyllt í það skarð fyrir vorönnina.

Til einföldunar fyrir skráningu, þá verður ekki boðið upp á prufuvikur, en skráning í greinar er ekki bindandi og hægt að gera breytingar á skráningu eftir að æfingar hefjast.

Æfingatafla Allir með, haust 2023

1. bekkur kk1. bekkur kvk2. bekkur kk2. bekkur kvk
MánudagurFimleikar 14:15-15:15Frjálsar 14:15-15:15Fimleikar 15:00-16:15Frjálsar 14:15:15-15
ÞriðjudagurKörfubolti 14:15-15:15 Taekwondo 16:50-17:45Taekwondo 16:50-17:45Körfubolti 14:15-15:15 Taekwondo 16:50-17:45Fimleikar 14:15-15:30 Taekwondo 16:50-17:45
MiðvikudagurFrjálsar 14:15-15:15Körfubolti 14:15-15:15Frjálsar 14:15-15:15Körfubolti 14:15-15:15
FimmtudagurFimleikar 14:15-15:15

Upplýsingar:
Egilsstaðaskóli mun bjóða upp á gæslu og aðstöðu fyrir börn sem eru að fara á æfingu beint eftir skóla, frá 13:50-14:05, til þess að borða nesti sem þau taka með að heiman. Börnin munu svo ganga yfir í íþróttahús þar sem tekið verður á móti þeim í anddyri íþróttahúss/fjölnotahúss þar sem þau gera sig klár á æfingu og fara inn í sal þar sem þjálfarar taka á móti þeim.
Starfsmenn íþróttahúss og þjálfarar munu sjá um að taka á móti börnunum í íþróttahúsi/fjölnotahúsi.
Fellaskóli mun sjá til þess að börn úr Fellaskóla nái strætó kl 14:00 og skili sér því á æfingu fyrir 14:15, þá daga sem æfingar eru á þeim tíma.

Hlökkum til að taka á móti börnunum.

Pin It on Pinterest