Þrettándagleði Hattar verður haldin í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum laugardaginn 6.janúar.
Þar verður íþróttafólki Hattar 2023 veittar viðurkenningar auk þess sem starfsmerki Hattar verða afhent. Lúðrasveitin leikur nokkur lög og að lokum sér Björgunarsveitin á Héraði um glæsilega flugeldasýningu.
Dagskráin hefst kl.17:30 og um leið verður kveikt í bálkesti.
Hlökkum til að sjá sem flesta og heiðra okkar frábæra íþróttafólk.