Þrettándagleði Hattar

jan 3, 2024 | Höttur

Þrettándagleði Hattar verður haldin í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum laugardaginn 6.janúar.
Þar verður íþróttafólki Hattar 2023 veittar viðurkenningar auk þess sem starfsmerki Hattar verða afhent.  Lúðrasveitin leikur nokkur lög og að lokum sér Björgunarsveitin á Héraði um glæsilega flugeldasýningu.

Dagskráin hefst kl.17:30 og um leið verður kveikt í bálkesti.

Hlökkum til að sjá sem flesta og heiðra okkar frábæra íþróttafólk.

Pin It on Pinterest