Þrettándagleði Hattar verður haldin í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum mánudaginn 6.janúar.
Þar verður íþróttafólki Hattar 2024 veittar viðurkenningar auk þess sem starfsmerki Hattar verða afhent.
Lúðrasveitin leikur nokkur lög og samningur vegna Unglingalandsmóts á Egilsstöðum 2025 verður undirritaður. Að lokum sér Björgunarsveitin á Héraði um glæsilega flugeldasýningu.
Dagskráin hefst kl.17:20 og um leið verður kveikt í bálkesti.
Hlökkum til að sjá sem flesta og heiðra okkar frábæra íþróttafólk.