Tryggingamál
Hérna má finna samantekt upplýsinga varðandi slysa og tryggingamál í íþróttastarfsemi.
Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn geri sér grein fyrir því að börn eru á ábyrgð foreldra sinna í íþróttum hverju sinni. Því er mikilvægt að foreldrar kynni sér þetta og sé í sambandi við sitt tryggingarfélag.
Íþróttafólk sem slasast á æfingum og í keppnum geta sótt ákveðnar endurgreiðslur v/ útlagðs sjúkra- og slysakostnaðar.
Eftirfarandi aðilar bæta hluta af fjárhagslegu tjóni:
- Íþróttaslysasjóður ÍSÍ endurgreiðir íþróttaiðkendum innan vébanda ÍSÍ, 16 ára og eldri, kostnaðarhluta sjúklings vegna sjúkraþjálfunar og beinnar læknismeðferðar, skv. opinberum taxta Sjúkratrygginga Íslands, sjá reglugerð ÍSÍ um greiðslu bóta vegna íþróttaslysa. Ríkisvaldið leggur árlega til framlag til ÍSÍ vegna íþróttaslysa og takmarkast greiðslugeta ÍSÍ af þeirri upphæð á hverju almannaksári: http://isi.is/pages/umisi1/sjodir/ithrottaslysasjodur/
- Sjúkratryggingar Íslands bæta þolendum tjón en almennt gildir sú takmörkun að til þess að eiga rétt á bótum úr slysatryggingum þarf slysið að hafa valdið a.m.k. 10 daga óvinnufærni: http://www.sjukra.is/slys/slysabaetur/
Íþróttafólk á eins og aðrir einnig rétt á því að sækja um afsláttarkort, sem veitir afslátt á sjúkraþjónustu þeirra sem eru með samning við Sjúkratryggingar Íslands, eftir að ákveðnu lágmarki er náð:
– 18 ára og yngri greiða fullt gjald upp að 8.400kr
– Eldri greiða fullt gjald upp að 28.000kr
Einnig bæta Sjúkratryggingar Íslands tjón vegna tannlækninga (skv. gjaldskrá) ef ekki er réttur til endurgreiðslu annars staðar: http://www.sjukra.is/heilbrigdisthjonusta/tannlaekningar/alvarlegar-afleidingar-faedingargalla-sjukdoma-og-slys/
Það er mikilvægt að benda á það að samkvæmt íslenskum lögum bera þau félög og samtök sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi ekki sjálfkrafa ábyrgð á slysum sem börn verða fyrir í starfinu.
Börn og ungmenni fá tjón af völdum slyss, t.a.m. tannlæknakostnað, ekki greiddan af öðrum, nema einhver beri skaðabótaábyrgð á slysinu.
Skilyrði skaðabótaábyrgðar eru m.a. að sá sem krafinn er um bætur eigi sök á slysinu.
Ef barn eða ungmenni slasast í óhappi sem engum verður kennt um ber sá sem stendur fyrir félags- og tómstundastarfinu þess vegna ekki ábyrgð á því.
Sá sem stendur fyrir starfinu ber hins vegar skaðabótaábyrgð ef starfsmenn hans, launaðir eða ólaunaðir, hafa sýnt af sér sök, t.a.m. vanrækslu við að gæta barna, og það veldur slysi.
Sá sem stendur fyrir starfinu, eða umráðamaður aðstöðu, getur orðið bótaskyldur ef aðbúnaður er ófullnægjandi og slys verður vegna þess.
Börn og ungmenni geta þurft að bæta öðrum börnum tjón sem þau valda.
Slys vegna íþrótta eru öllu jafna bætt úr fjölskyldutryggingu en hafa skal í huga að slys sem verður í keppni eða æfingar fyrir keppni eru ekki bótaskyld úr þessum tryggingum eftir 16 ára.
Frekari upplýsingar um tryggingamál félagasamtaka má finna í bæklingi sem gefinn var út af menntamálaráðuneytinu haustið 2010: http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/Forsidugreinar/nr/5685