Íþróttavika Evrópu 2024

sep 30, 2024 | Fimleikar

Íþróttavika Evrópu var haldin vikuna 23-30. september. Fimleikadeildin bauð upp á opnar fimleikaæfingar fyrir drengi í 4.-8. bekk og stúlkur í 4.-10. bekk.

Keppnishópar í tilefni íþróttaviku fengu til sín gestaþjálfara, Alexöndru Sigurdórsdóttur. Alexandra er íþróttafræðingur og hefur þjálfað fimleika hjá hópfimleikadeild Gerplu síðustu ár. Hún er fyrrum þjálfari og iðkandi hjá Fimleikadeild Hattar. Lögð var áhersla á dans og dansæfingar en líka farið í æfingar á dýnu og trampolíni. Alexandra gaf þjálfurum hópanna ganglega punkta.

Alexandra var í heimsókn hjá okkur í þrjá daga og teljum við okkur afar lánsöm að hafa fengið svona reyndan og flottan þjálfara í heimsókn.

Pin It on Pinterest