Fimleikar

Daglegt starf

Fimleikadeild Hattar bíður upp á hópfimleika. Starfið er blómlegt með 16 þjálfurum og aðstoðaþjálfurum ásamt 340 iðkendum sem eru frá 2 ára aldri. Áhersla er lögð á að fimleikar eru fyrir öll og boðið er upp á hópa bæði fyrir iðkendur í keppni og fyrir þau sem kjósa fimleika sem hreyfingu.

Stundatöflu deildarinnar er að finna hjá æfingatöflum allra deilda en forsjáraðilar sjá æfingar barna sinni í Sportabler eftir skráningu.

Fyrirspurnir um starf deildarinnar og vegna einstaka iðkenda skal beina eftir atvikum til starfskonu eða yfirþjálfara.

Starfskona: Anna Dís Jónsdóttir fimleikar.hottur@gmail.com

Yfirþjálfari: Díma Írena Pálsdóttir, fimleikadeild.hottur@gmail.com

Stjórn

Forman: Ásta Dís Helgadóttir, fimleikar@hottur.is

Gjaldkeri: Hrafnhildur Unnarsdóttir, gjaldkeri.fimleikar.hottur@gmail.com 

Ritari: Tara Ösp Tjörvadóttir

Meðstjórnendur: Agla Þorsteinsdóttir, Hrafnhildur Magnadóttir og Soffía Björg Sveinsdóttir

Punktar fyrir foreldra
  • Láta vita af forföllum tímalega í Sportabler.
  • Ef þið viljið að barnið ykkar hafi Sportabler appið þurfið þið að biðja um kóðann fyrir ykkar flokk til að setja það upp.
  • Passa að börnin ykkar taki með sér  íþróttafatnað og gott að þau koma einnig með vatnsbrúsa.
  • Passa að iðkendur hafi hollt og gott nesti ef þau koma beint á æfingu úr skólanum annars að passa að þau borði fyrir æfingar.
  • Almennt getum við ekki boðið foreldrum/forsjáraðilum uppá að horfa á æfingar í fimleikahúsinu, þar sem tartanið þar sem áhorfendasvæðið er stundum í notkun þegar æfingar eru. Engu að síður er opið fyrir að foreldrar biðji um að fá að vera viðstödd æfingar ef tilefni er til og einnig geta hópstjórar beðið foreldra að koma og fylgjast með ef þarf.
  • Hvetjum foreldra til að hafa samband ef eitthvað er.
Um gjöld

Gjöld er hægt að að sjá á skráningarsíðu deildarinnar þegar opið er fyrir skráningu.

Systkynaafsláttur ef veittur af æfingargjöldum fyrir iðkendur í 3 bekk og eldri, afsláttur er ekki gefin af fyrsta barni. Ekki er gefin afsláttur af námskeiðum. Afsláttur 10% er reiknaður sem vegið meðaltal af síðustu og núverandi kaupum án aflsáttar. Sem dæmi:

Afsláttur við Kaup1 = 0
Afsláttur við Kaup2 = (Kaup1 án afsláttar + Kaup2 ánafsláttar) / 2 * afsláttarprósenta.
Afsláttur við Kaup3 = (Kaup 2 án afsláttar + Kaup3 án afsláttar) / 2 * afsláttarprósenta.
Afsláttur við Kaup4 = (Kaup 3 án afsláttar + Kaup4 án afsláttar) / 2 * afsláttarprósenta.

Um krílahóp

Krílahópur er fyrir öll börn á aldrinum 2-5 ára. Þessar æfingar eru fyrir þau sem vilja stunda hreyfingu í skipulögðu starfi. Í tímanum er farið í upphitun, leiki, teygjur og fjölbreyttar þrautabrautir. Börnin fá að kynnast öllum áhöldum sem eru notuð inn í hópfimleikasal og eru þessir tímar frábær grunnur fyrir allar íþróttir. Tímarnir eru einu sinni í viku 13 vikur á haustönn og 14 vikur á vorönn.

Áhersla er lögð á að:

  • Auka hreyfiþroska barna
  • Byggja góðan grunn fyrir áframhaldandi þátttöku í íþróttum
  • Tengja hreyfingu við gleði
  • Æfa að fylgja fyrirmælum
  • Leysa áskoranir í öruggu og krefjandi umhverfi
Um áhugahópa

Áhugahópur er fyrir þau sem vilja æfa fimleika en ekki keppa. Hóparnir henta fyrir krakka sem vilja æfa minna en keppnishópar, þessir hópar sleppa keppnisundirbúningi og eru æfingar því styttri. Það er í boði að velja hvort æft sé 1x eða 2x í viku. Sérstök áhersla er lögð á grunnæfingar í fimleikum ásamt fjölbreyttum æfingum á stökkdýnum og trampólínum. Ólíkt keppnishópum fara þessir hópar ekki á sér gólfæfingu. Áhugahópar taka þátt í sýningu Fimleikadeildar Hattar. Reynsla í fimleikum er ekki nauðsynleg, við tökum vel á móti byrjendum.

Áhersla er lögð á að:

  • Bæta færni í fimleikum
  • Æfa að vera þátttakandi í hóp
  • Auka vöðvastyrk, þol og liðleika
  • Æfa góða hegðun og sjálfsaga
  • Bæta samhæfingu
Um keppnishópa

Keppnishópur er fyrir þau sem hafa áhuga á að keppa í hópfimleikum. Í hópfimleikum er keppt í æfingum á gólfi, dýnu og trampólíni. Þessir hópar eru með sér gólfæfingu (dans) 1x í viku.  

Æfingar eru skipulagðar í kringum keppnisreglur. Krafa er gerð um að iðkendur mæti á öll mót vetrarins og æfi á öllum æfingum sem eru í æfingaráætlun hópsins.  Í yngri flokkunum (5. og 4. flokki og drengjahópnum) er markmiðið að öll börn fá að gera í einhverjum umferðum á mótum. Eftir því sem iðkendur verða eldri eru fjöldatakmarkanir í umferðum strangari og því er raðað í umferðir eftir getu. 

Keppnishópar taka þátt í sýningu Fimleikadeildar Hattar. 

Áhersla er lögð á að:

  • Æfa og undirbúa nýjar og erfiðari fimleikaæfingar
  • Undirbúa iðkendur fyrir keppni
  • Æfa að vera þátttakandi í hóp
  • Auka vöðvastyrk, þol og liðleika
  • Æfa góða hegðun og sjálfsaga
  • Bæta samhæfingu

Um flokkana:

  • Drengir keppnishópur er fyrir 3. bekk og eldri. Ekki gerð krafa um grunn í fimleikum
  • 5.flokkur stúlkur í 3. bekk. Ekki er gerð krafa um grunn í fimleikum
  • 4.flokkur stúlkur í 4.-5. bekk. Ekki er gerð krafa um grunn í fimleikum
  • 3.flokkur stúlkur í 6.-7. bekk. Grunnur í fimleikum nauðsynlegur
  • 2.flokkur stúlkur í 8.-9. bekk. Grunnur í fimleikum nauðsynlegur
Reglur fyrir Krílahóp
  • Í krílahóp 1 og 2 mætir einn fullorðin einstaklingur með barninu og fylgir því í gegnum æfinguna. Aðstoðar eftir þörfum og eftir fremsta megni heldur því á réttri leið.

  • Krílahópur 3 og 4 eru ekki í fylgd fullorðinna á æfingunni. Á meðan æfingu stendur er mikilvægt að foreldrar séu sem stuðningur sé þess þörf en passa þarf að trufla ekki æfinguna. Ekki er krafa á að foreldrar séu í húsi meðan æfing stendur.

  • Þjálfarar leiðbeina um hvar áhorfendur eiga að sitja í salnum, ekkert eiginlegt áhorfendasvæði er í húsinu. Áhorfendum er boðið að sækja sér stóla og horfa á æfinguna frá tartanbrautinni, ekki má sitja á fimleikaáhöldunum.

  • Önnur börn en þau sem eru skráð á viðkomandi æfingu eiga ekki að vera á æfingarsvæðinu. 

  • Matur og aðrir drykkir en vatn eru ekki leyfðir inni í sal.

  • Mætið tímalega og látið vita af forföllum í Sportabler.

  • Iðkendur eiga að vera í viðeigandi íþróttafatnaði sem er ekki of víður og gæti flækst fyrir þeim og þjálfurum.

  • Taka hár frá andliti, þannig að ekki sé nein hætta að það flækist í áhöldum.

  • Bera virðingu fyrir öðrum iðkendum, þjálfurum og starfsfólki íþróttamiðstöðvarinnar.

  • Fara eftir fyrirmælum þjálfara.

Reglur fyrir iðkendur
  • Vera stundvís á æfingar ekki má mæta í fimleikahúsið meira 15. mín fyrir æfingu. 
  • Iðkendur skulu ávalt mæta í íþróttafötum á æfingu, best er að vera í fimleikabol. Ekki má mæta í víðum fötum á æfingu, né vera með bert á milli. 
  • Hárið skal alltaf hafa greitt frá andliti – ekki nóg að setja hluta af hárinu í teygju. 
  • Iðkendur bíða inni í klefa þar til þjálfari sækir hópinn. Að undanskildum 1 flokki og MFL. Þau mega vera inni í sal ef þau eru að rúllla og teygja. 
  • Mæta ekki með verðmæti á æfingar. 
  • Símar eru ekki leyfilegir á æfingum. 
  • Berum virðingu fyrir öðrum iðkendum, þjálfurum og starfsfólki íþróttamiðstöðvar. 
  • Förum eftir fyrirmælum þjálfara. 
  • Vatn er eini leyfilegi drykkurinn inni í fimleikasal – mælum með því að öll hafi vatnsbrúsa með sér á æfingu. 
    Reglur um keppnisferðir
    1. Keppendur, fararstjórar, þjálfarar og dómarar skulu ávallt vera til fyrirmyndar um alla framkomu í ferðum á vegum fimleikadeildar Hattar. Sýna hæversku og reglusemi á leikvangi jafnt innan vallar sem utan. Á ferðalagi sameinast allir í að vinna að velferð hópsins, góðri ímynd, liðsheild og velgengni. Alvarleg agabrot leiða til ferðabanns eftir nánari ákvörðun stjórnar fimleikadeildar Hattar. Alvarleg agabrot er t.d. að fara út af gististað án samþykkis fararstjóra/þjálfara, fá gesti á gististað að næturlagi, nota áfengi, nikótín og önnur vímuefni á meðan á keppnisferð stendur ásamt, að fara ekki eftir fyrirmælum fararstjóra með mætingu inn á gististað að kvöldi ásamt fleiru.
    2. Fararstjóri fer með æðsta vald og ábyrgð meðan á ferð stendur og er ábyrgur gagnvart stjórn fimleikadeildar Hattar. Hann kemur fram fyrir hönd hópsins og stjórn fimleikadeildarinnar.
    3. Fararstjóri fylgist með undirbúningi keppnisferðar í samráði við framkvæmdarstjóra og yfirþjálfara, fer yfir skipulag með viðkomandi aðilum og undirbýr hollan matseðil fyrir helgina.
    4. Fararstjóri sér um keppendur allan tímann nema á keppnisstað, þar sjá þjálfarar um keppendur. Fararstjóri er á áhorfendasvæði á meðan og er til taks ef þjálfarar óska eftir aðstoð.
    5. Fararstjóra er heimilt að senda heim þátttakendur og/eða fylgdarmenn á þeirra kostnað ef þeir hafa, að hans mati, brotið verulega gegn reglum þessum. Ef þáttakandi er sendur heim á meðan á keppnisferð stendur þarf stjórn fimleikadeildar Hattar að fá upplýsingar um agabrotið.
    6. Stjórn Fimleikadeild Hattar hefur lokaákvörðun í öllum málum sem koma upp í keppnisferðum eftir að ferð lýkur.
    7. Stjórn fimleikadeildar Hattar getur óskað eftir að fararstjóri og þjálfari skili ferðaskýrslu eftir að keppnisferð lýkur.
    8. Keppendur:
      1. Keppendur skulu ávallt sýna íþróttamannslega framkomu jafnt utan sem innan keppnisstaðar.
      2. Keppendur skulu lúta þeim reglum sem farastjórn og þjálfarar setja enda tengjast þær því að skapa góða ímynd, ná árangri og efla liðsheild.
      3. Keppendur bera ábyrgð fyrir sitt leiti að keppnisbúningar og keppnisföt séu í lagi og komi með þau á mótsstað.
      4. Keppendur geta aldrei yfirgefið mótsstað eða hótel/gististað án leyfis þjálfara og fararstjóra.
      5. Keppendur eiga alltaf að fylgja hóp á skipulögðum viðburðum á meðan keppnisferð stendur eins og borða saman (á við um morgunmat og aðra máltíðar), mæta á réttum tíma þegar farið er af stað.
      6. Ró á að vera komin á og allir í sínum herbergjum frá kl 23, nema fararstjóri ákveði annað.
      7. Keppendur bera ábyrgð á því að borða hollan og góðan mat, sleppa sælgæti og orkudrykkum á meðan á ferð stendur.
    Happdætti

    Fimleika Fréttir

    Fræðsludagur

    Flest allir þjálfarar hjá fimleikadeild Hattar ásamt stjórnarfólki komu saman á fræðsludegi fimleikasambandsins í Haust. Þar voru hin ýmsu málefni tekin fyrir sem snerta starf þjálfarans og íþróttahreyfingarinnar. Fimleikadeildin gerir miklar kröfur um menntun til...

    Íþróttavikan hjá fimleikadeildinni

    Íþróttavikan hjá fimleikadeildinni

    Íþróttavika Evrópu var haldin með stæl í Múlaþingi dagana 23. - 30. september s.l. en hún er haldin ár hvert í yfir 30 löndum. Fimleikadeildin hélt Parkour örnámskeið laugardaginn 30. sept í þeim tilgangi að kynna íþróttina fyrir áhugasömum krökkum. 43 krakkar á...

    Upphaf vetrarins hjá fimleikadeild Hattar

    Upphaf vetrarins hjá fimleikadeild Hattar

    Æfingar fimleikadeildarinnar byrja á miðvikudaginn 23. ágúst og 2. september hjá krílahópum.  Deildarsíðan hefur verið uppfærð með upplýsingum um áherslur fyrir keppnishópa og áhugahópa.  Í vetur eins og sl. vetur verður ýmist keppt í hópfimleikum eða...

    Mix liðið á Mótaröð 3

    Mix liðið á Mótaröð 3

    Mótaröð 3 var haldin um helgina í Stjörnunni og voru 16 lið skráð til keppni en aðeins þrjú kepptu í flokki blandaðra liða. Meðal þeirra var mix lið Hattar í meistaraflokki. Mótaröðin samanstendur af þremur hópfimleikamótum sem dreifast yfir keppnistímabilið. Liðin...

    Bikarmeistarar í Stökkfimi eldri

    Bikarmeistarar í Stökkfimi eldri

    2. flokkur Fimleikadeildar Hattar keppti á Bikarmóti í Stökkfimi eldri sunnudaginn 5. mars sem haldið var í Gerplu. Níu lið kepptu um bikarmeistaratitilinn og var keppnin mjög spennandi. Þær urðu í 1. sæti fyrir gólfæfingar og fyrir samanlagðan árangur allra áhalda....

    Fimleikamót í febrúar

    Fimleikamót í febrúar

    Höttur sendi 75 keppendur á mót í febrúar, mótin skiptust niður á tvær helgar, GK mót yngri flokka var haldið í Fjölni helgina 3.-5. febrúar og GK mót eldri flokka var haldið á Akranesi viku seinna ásamt Mótaröð 2.  Stökkfimi stúlkna yngri 3.flokkur Hattar keppti...

    Jólasýning 2022 fimleikadeildarinnar

    Jólasýning 2022 fimleikadeildarinnar

    Jólasýning Fimleikadeildar Hattar fór fram laugardaginn 10. desember, tvær sýningar voru sýndar. Rúmlega 270 iðkendur og 17 þjálfarar tóku þátt í sýningunni, 4 ára og eldri. Fjöldi sjálfboðaliða tóku þátt í sýningunni og aðstoðuðu við allskonar verkefni á borð við...

    Pin It on Pinterest